Gefendur safnsins

Þann 16. júní 1980 færðu hjónin Arngrímur Ingimundarson og Bergþóra Jóelsdóttir Siglfirðingum höfðinglega gjöf, alls 124 listaverk eftir marga af okkar þekktustu listamönnum. Með gjöfinni vildu Arngrímur og Bergþóra sýna Siglfirðingum í verki þakklæti fyrir stuðning sem þeir veittu foreldrum Arngríms á erfiðleikatímum eftir þau brugðu búi í Fljótum vegna heilsubrests föður hans og fluttust til Siglufjarðar. Málverkasafn þeirra hjóna var talið vera eitt vandaðasta og fjölbreyttasta listaverkasafn í einkaeign hér á landi. 

Arngrímur var fæddur að Höfn í Höfn í Holtshreppi í Skagafirði 23. nóvember 1912, sonur hjónanna Ingimundar Sigurðssonar og Jóhönnu Arngrímsdóttur. Bergþóra var fædd í Reykjavík 29. október 1913, dóttir hjónanna Jóels Sumarliða Þorleifssonar og Sigríðar Kristjánsdóttur. Arngrímur og Bergþóra giftu sig 1945 og bjuggu í Reykjavík upp frá því. Þau hjónin keyptu verslunina Vörðuna árið 1958 sem var kunn fyrir sölu barnavagna. Bergþóra lést 25. mars 1995 og Arngrímur 16. apríl 2009.

Í safninu er einnig að finna fjölda verka sem gefin hafa verið frá einstaklingum og fyrirtækjum til hvort um sig Siglufjarðar og Ólafsfjarðar gegnum tíðina og einnig verk sem hafa verið gefin Fjallabyggð eftir sameiningu Ólafsfjarðar og Siglufjarðar.

Bæklingur til lestrar