Um safnið

Listasafn Fjallabyggðar er eingöngu til sýnis á vefnum. Sýningar á verkum úr safninu verða auglýstar á heimasíðu Listasafnsins og Fjallabyggðar. 

Upphaf safnsins má rekja til rausnarlegrar gjafar hjónanna Arngríms og Bergþóru, en þann 18. júní 1980 gáfu hjónin Siglfirðingum alls 124 listaverk eftir nokkra af okkar þekktustu listamönnum. Með gjöfinni vildu Arngrímur og Bergþóra sýna Siglfirðingum í verki þakklæti fyrir stuðning sem þeir veittu foreldrum Arngríms á erfiðleikatímum eftir þau brugðu búi í Fljótum vegna heilsubrests föður hans og fluttust til Siglufjarðar. Málverkasafn þeirra hjóna var talið vera eitt vandaðasta og fjölbreyttasta listaverkasafn í einkaeign hér á landi. Arngrímur var fæddur að Höfn í Austur- Fljótum, 23. nóvember 1912, sonur hjónanna Ingimundar Sigurðssonar og Jóhönnu Arngrímsdóttur. Bergþóra var fædd í Reykjavík 29. október 1913, dóttir hjónanna Jóels Sumarliða Þorleifssonar og Sigríðar Kristjánsdóttur. Arngrímur og Bergþóra giftu sig 1904 og bjuggu í Reykjavík upp frá því. Þau hjónin keyptu verslunina Vörðuna árið 1958 sem var kunn fyrir sölu barnavagna. Bergþóra lést 25. mars 1995 og Arngrímur 16. apríl 2009.

Í Listasafni Fjallabyggðar er að finna, auk þessara 124 listaverka frá hjónunum Arngrími og Bergþóru, ríflega 50 önnur verk sem sveitarfélaginu hafa verið færð að gjöf og einnig er að finna í safninu verk sem bæjarfélagið hefur keypt af listamönnum.